miðvikudagur, janúar 26, 2005

Það var eitt kvöld

Það var eitt kvöld að mér heyrðist hálfvegis barið,

Ég hlustaði um stund og tók af kertinu skarið

Ég kallaði fram og kvöldgolan veitti mér svarið

Hér kvaddi lífið sér dyra og nú er það farið

Eftir Jón Helgason


Hvernig túlkið þið þetta svo?!

þriðjudagur, janúar 25, 2005

ER ÞAÐ NÚ!!!

Ég er eiginlega búin að komast að því að ég er ekki súperkona. Hef lengi haldið í þá trú en þegar ég er að vinna jafnmikið og ég geri og að hugsa um heimilið þá hefur sko heimilið setið á hakanum ... má bara ekkert vera að því að þrífa og ég held alltaf að ég sé nýbúin að því en fatta svo að tíminn líður bara svo hratt :-) Ég þarf bara að fá mér heimilishjálp... hmmm einhver til í að vinna sér inn smá pening?

sunnudagur, janúar 23, 2005

Að sleppa tökunum


Að sleppa tökum, þýðir ekki að mér standi á sama, það þýðir: ég get ekki lifað lífinu fyrir aðra.

Að sleppa, þýðir ekki að einangra sig frá, heldur að skilja, að ég get ekki stjórnað öðrum.

Að sleppa, er ekki að standa undir, heldur að leyfa öðrum að læra að eigin reynslu.

Að sleppa, er að viðurkenna vanmátt, sem þýðir: úrslitin eru ekki í mínum höndum.

Að sleppa, er ekki að breyta öðrum eða ásaka, heldur að gera það sem ég get gert úr mér.

Að sleppa, er ekki að bera ábyrgð á, heldur að bera umhyggju fyrir.

Að sleppa, er ekki að kippa í lag, heldur að vera hvetjandi.

Að sleppa, er ekki að dæma, heldur að leyfa öðrum að vera eins og þeir eru.

Að sleppa, er ekki að vera önnum kafin við að stjórna örlögunum, heldur að leyfa öðrum að hafa áhrif á eigin örlög.

Að sleppa, er ekki að afneita, heldur að sætta sig við.

Að sleppa, er ekki að nöldra, rífast eða skammast, heldur að

leita að eigin mistökum og lagfæra þau.

Að sleppa, er ekki að laga allt að mínum þörfum, heldur að taka hvern dag fyrir sig og njóta hans.

Að sleppa, er ekki að gagnrýna eða skipuleggja aðra, heldur að vera það sem mig dreymir um að vera.

Að sleppa, er ekki að velta sér upp úr fortíðinni, heldur að njóta dagsins í dag og framtíðarinnar.

Að sleppa er að óttast minna og að elska meira.

föstudagur, janúar 21, 2005

www.kolbrun.tk

"sick 'n tired of always being sick 'n tired" : )
er heima á þriðja degi með soninn veikann. er sjálf búin að vera hálfslöpp en hef reynt að nýta tímann að einhverju leyti í vinnu - lestur og undirbúning. hann er loksins orðinn hraustur en ég vildi ekki hætta á heilsuna hans með þvi að senda hann á leikskólann fyrir einn dag. ég verð bara með þéttar kennslustundir í næstu viku í staðinn. enda hafa þær verið næstum of rólegar meira að segja fyrir hægferðaráfanga. en ég er auðvitað bara að komast inn í starfið og mér líkar bara alveg ágætlega. leiðinlegt að byrja á svona veikindum samt. en ekkert sem ég fæ ráðið við.

ég er búin að láta meta íbúðina mína aftur... hún hækkar og hækkar í verði. sem er bara jákvætt.

jæja allt þetta sniðuga sem ég ætlaði að segja lætur standa á sér eins og vanalega.


miðvikudagur, janúar 12, 2005

>I'm in 7th heaven<

Fékk tölvupóst í dag þar sem mér var tilkynnt að ég eigi von á formlegu bréfi á næstunni frá Napier University þar sem ég hafi hlotið inngöngu í MSc í MIS.

Allt gengur semsagt vel :o)

sunnudagur, janúar 09, 2005

Jæja já...

Hmm. Það sem gengur á hjá mér þessa dagana er að ég var að byrja í nýju vinnunni og það er nóg að gera. Svo var ég að taka niður jólin og ég hef þurft að laga smávegis fjármál vegna óvæntrar uppákomu. Ekki neitt alvarlegt bara vesen. En allt tekur tíma og orku og þið vitið.
Ég er enn að bíða eftir svari frá skólanum... vona að það berist nú í vikunni svo ég geti farið að ákveða hvað ég geri í húsnæðismálum. Ég er ákveðin í að selja og kaupa nýtt ef ég fer ekki annars sel ég bara og nýt þess að eiga smá peninga svona einu sinni :o)

Markmið fyrir árið... stefni að framför, á öllum sviðum...ekki fullkomnun...