Ef ég væri ekki orðin svona glöð almennt þá væri ég brjáluð núna, er náttúrulega pínku pirruð!!! Ég fékk eftirfarandi í tölvupósti í dag:
Verkefnin ykkar eru komin í kassa fyrir utan dyrnar á
skrifstofunni minni. Þið megið gjarnan sækja það sem þið eigið hjá
mér sem fyrst.
Skv. bókhaldi mínu eiga eftirtaldir nemendur enn eftir að
skila mér inn slóð að vefsíðu: Ásta Beck, Erla Björg, Hólmfríður
Anna, Kolbrún Hlín og Sigríður Hildur. Vinsamlegast hafið í huga að
ég er að fara úr landi á miðvikudaginn og verð í burtu í fimm vikur
þannig að þið verðið að skila mér slóðinni eigi síðar en á morgun,
mánudag, ef að þið viljið fá einkunn nú í janúar.
Ég var ein af fyrstu manneskjunum til að skila og gerði það 16.desember. Ég held að ég hafi sjaldan verið jafn móðguð og akkúrat núna!
En burtséð frá því er ég svakalega glöð með lífið. Ég fór í gönguferð í dag í Elliðarárdalinn í klukkatíma með Agnesi frænku og fleirum... ég fékk mér líka göngutúr í gær en Viktor kom til mín og við gengum heiman frá mér og niður í bæ að sækja bílinn minn og komum við á Kaffibrennslunni og fengum okkur hamborgara og bjór! Lítinn bjór bara. Svo var ég komin heim um níuleytið og sofnuð rétt um miðnætti. Það var gott. Fór svo með Agnesi frænku í dag eftir gönguferðina í
Sporthúsið og ég er alvarlega að hugsa um að fá mér kort... því kortið gildir í Sporthúsið,
Baðhúsið, og
Þrekhúsið. Jibbí og jú allar einkunnir nema ein komnar inn og ég er í fínum málum.
Ég fór í svona fitumælingu í Sporthúsinu og ég er í betri málum en ég var þegar ég var 19 ára en þarf samt að fara niður um nokkur prósent til að vera góð.